Spurningavefurinn

Hvað eru lækningasveppir?

Lækningasveppir eru ákveðnar tegundir sveppa sem hafa verið notaðir til lækninga í hundruðir ára og eru vísindamenn farnir að sjá brautryðjandi vísbendingar um öflug áhrif þeirra til varnar, fyrirbyggingar og lækninga á ýmsum sjúkdómum og heilsufarskvillum.

Eru lækningasveppir eitthvað skildir eða svipaðir ofskynjunarsveppum?

Nei, ofskynjunarsveppir tilheyra öðrum sveppategundum sem innihalda efnasambandið psilocybin. Engir lækningasveppir tilheyra þessum flokki og hafa því ekki aukaverkanir á borð við ofskynjunarsveppi og er neysla og notkun lækningasveppa fullkomlega örugg og leyfileg.

Má ég taka inn sveppi samhliða öðrum lyfjum?

Lækningasveppir eru í flestum tilfellum örugg bætiefni en varast þarf að áhrif þeirra séu ekki gagnvirk á heilsufarskvilla einstaklinga. Sumir lækningasveppir geta lækkað blóðþrýsing og ættu því einstaklingar á blóðþrýstingslyfjum eða öðrum lyfjum vegna heilsu að hafa samráð við sinn lækni.

Eru sveppirnir í lagi fyrir barnshafandi konur?

Þrátt fyrir að notkun lækningasveppa séu talin vera örugg þá bendum við alltaf á að hafa samband við þinn lækni sértu barnshafandi eða með barn á brjósti.

 

Fleiri almennar spurningar 

Hver er gæðastuðullinn?

Við göngum úr skugga um að vörurnar okkar séu einungis framleiddar úr lífrænt ræktuðum jurtum. Ice Life notar engin fylliefni eins og algengt tíðkast í framleiðslu lækningasveppa, heldur einungis 100% sveppaduft (extract) og er því gæðastuðullinn einn sá besti í heimi. 

 

Eru lækningasveppir fyrir alla?

Lækningasveppir er taldir vera eitt öruggasta lyf sem fyrir finnst og ætti að henta flestum. Við bendum á að hafa samband við lækni áður en þú tekur sveppina samhliða öðrum lyfjum.

 

Hvað má ég taka mikið af sveppadufti á dag?

Við mælum með að fylgja ráðleggingum á umbúðum vörunnar. Sveppirna má taka oftar á dag án nokkura aukaverkana.

 

Hvernig byrja ég?

Við mælum með að byrja rólega að bæta sveppunum við fæðuna þína. Lestu þig til um hvað sveppirnir gera og prófaðu þig áfram þar til þú finnur það sem hentar þér. Sveppina er best að taka daglega fyrir bestu virkni.

 

Hafa sveppirnir einhvejar aukaverkanir?

Ekki hefur verið greint frá aukaverkunum af inntöku lækningasveppa í hóflegu magni. Ef þú finnur fyrir aukaverkunum skaltu hætta inntöku og hafa samband við lækni.